Finnbogi Þorkell

og

Af hverju hlæjum við… ekki oftar?

Finnbogi fyrirlesari, grín, hlátur, skemmtun fyrir starfsfólk, óvænt uppákoma, árshátíð, hópefli, fjör, sameina hóp, starfsmannahittingur,

Leikarinn og hláturjógaleiðbeinandinn Finnbogi Þorkell hefur síðan vorið 2026 verið á hörku flugi  með skemmtifyrirlesturinn, Af hverju hlæjum við… ekki oftar?, sem hlotið hefur gríðarlega góðar viðtökur.

Um fyrirlesturinn

Í fyrirlestrinum sem er einskonar fræðandi uppistand, fer Finnbogi yfir hvað gerist í líkamanum, huganum og í samskiptum okkar við aðra þegar við hlæjum? Hvaða áhrif hefur góður hlátur á hópavinnu á vinnustað, fjölskyldulíf og daglegt líf, eða þá bara þegar við flissum ein með sjálfum okkur?

Og síðast en ekki síst kynnir hann til sögurnar aðferðir sem fá okkur til að hlæja oftar og meira í hinu daglega lífi en þær geta verið mjög áhugaverðar og hagnýtar fyrir vinnustaði og hópastarf!

Fyrir hverja?

Fyrirlesturinn hentar fyrir allar gerðir hópa á öllum tímum dags. Finnbogi hefur heimsótt fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök  og einkapartý og einnig sýnt í leikhúsinu Tjarnarbíói þar sem hann fékk frábærar viðtökur.

Fyrirlesturinn er einnig boði hjá Þekkingarmiðlun sem sérhæfir sig í að miðla þekkingu með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum. Hægt er að bóka fyrirlesturinn eða senda fyrirspurnir hér.

A man giving a presentation to an audience in a room with large windows and a screen displaying a slide. The audience is seated and listening.
A man giving a presentation to an audience in a room with large windows and a screen displaying a slide. The audience is seated and listening.

Á Bókasafni Kópavogs - Gulur september 2026

“Brilliant viðfangsefni og skemmtilegur fyrirlesari, mikið hlegið. Mjög gott fyrir hópinn okkar, einmitt það sem ég þurfti að heyra!”
— Maddý Haut framkvæmdastýra.

Nánar um Finnboga, fyrirlesturinn og heimsóknir.

Finnbogi nýtir hér vel reynslu sína sem hláturjógaleiðbeinandi og eigandi Gleðismiðjunnar sem hann stofnaði ásamt félaga sínum Þorsteini árið árið 2019. Þeir félagar hafa farið um allt land með hláturjóga, hópefli og leiki og upplifað flest sem hægt er þegar kemur að þessu dásamlega fyrirbæri, hlátrinum.

Um er að ræða fræðandi skemmtun eða “edutainment” á ensku. Fluttningurinn tekur um 50 mínútur og fer Finnbogi einfaldleg á kostum í að miðla áhugaverðum og hagnýtum fróðleik á skemmtilegan og einlægan hátt sem einnig er mikill innblástur fyrir hópastarf, einstaklinga og daglegt líf.

Fyrirlesturinn byggir á fræðilegum grunni núvitundarfræða, sálfræði, taugavísinda, heimspeki, leiklistar og félagsvísinda og Finnbogi fléttar þessum fræðum saman við reynslu sína sem manneskja í nútíma samfélagi, …og svo fljóta nokkrar óborganlegar dæmisögur með.

“Mjög sterkt hvernig Finnbogi tengir saman fræðilega þekkingu, mannlega reynslu og léttleika. Vekur fólk til umhugsunar um mikilvægi hláturs, tengsla og samskipta í daglegu lífi, ekki síst í starfi með fólki.”
— Rúnar Helgi sálfræðingur
“Stórkostleg upplifun, hló meira með kærustunni næstu daga eftir. Mæli eindregið með!”
— Helgi Örn þýðandi Utanríkisráðuneytinu

Heimsóknir

Meðal þeirra staða sem Af hverju hlæjum við?, hefur heimsótt eru:

Orkuveitan

Matvælastofnun

Hlemmur Haus

Bóksafn Kópavog

Sem og smærri hópa og bjórkvölda.

Finnbogi Þorkell Jónsson er maður margra hatta. Hann er leikari, fyrirlesari, hláturjógaleiðbeinandi, jógakennari, textasmiður, leiðsögumaður, veislustjóri, hefur rekið Gleðismiðjuna ásamt félaga sínum síðan 2019 og farið með hláturjóga, hópefli og leiki út um allt land.

Útfrá  þeirri  reynslu varð Finnbogi einlægur áhugamaður um þennan dásamlega eiginleika mannsins, hláturinn.

Auk þessa grípur hann í talsetningu, lestur hljóðbóka, jógakennslu, framkomuþjálfun og smíðavinnu. Nánar um leikarann og listamanninn Finnboga hér.

Finnbogi setur gjarnan áhugavert efni inná instagram, tjekkið á því hér fyrir neðan, velkomið að fylga hér. Góða skemmtun !